In IJsland is Paul Sterk geïnterviewd door de meest gelezen landelijke krant, Fréttablaðið. Het artikel gaat over de presentatie van Paul Sterk in Húsavík, Noord-IJsland. Húsavík is de Walvishoofdstad van Europa en ze noemen de walvissen daar ook wel “Giants”. In het Whale Museum heeft Paul Sterk verteld over de passages uit zijn rock ’n’ roll roadnovel “Via sterren en zeemeerminnen” die met IJsland en Húsavík te maken hebben. En namens de Nederlandse muziekgroep The Giants of Húsavík heeft hij hun CD officieel aangeboden aan het Whale Museum.
De kop van het artikel in Fréttablaðið heet: Hollendingar hertaka Húsavík. Dit betekent zoiets als "Nederlanders nemen Húsavík in". Paul Sterk en The Giants of Húsavík bekijken nu hoe ze samen een vervolg kunnen geven aan wat ze het Húsavík Project hebben genoemd.
Voor wie het IJslands machtig is, hieronder de tekst uit Fréttablaðið (31 juli 2009).
Paul Sterk in IJsland

Hollenski rithöfundurinn Paul Sterk og samlandar hans, meðlimir hljómsveitarinnar The Giants of Húsavík, eru heillaðir af landi og þjóð. Sérstaklega af hvölum og Húsavík þar sem þeir ætla að lesa upp úr skáldverkum og leika tónlist í Hvalasafninu á morgun.

„Það er mjög fyndið og skemmtilegt hvernig þetta kom allt saman til. Á morgun ætla ég að lesa úr verkum mínum og strákarnir Maurits Westerik og Jason Kohnen í hollensku hljómsveitinni The Giants of Húsavík ætla að spila fyrir gesti Hvalasafnsins á Húsavík klukkan 17. Þetta er hluti af verkefni sem við köllum The Húsavík Project. Húsavík er yndislegur staður með góðu fólki og er þetta gert til að heiðra alla Húsvíkinga,“ segir Paul Sterk, dálka- og rithöfundur frá Hollandi. Fyrsta skáldsagan hans, Via sterren en zeemeerminnen, sem á íslensku ber heitið Gegnum stjörnur og hafmeyjar, kom út um síðustu jól í Hollandi, en hluti af sögunni á sér stað á Íslandi og þá sérstaklega á Húsavík. Þrátt fyrir að bókin gerist að hluta til hérlendis hefur hún ekki verið þýdd yfir á íslensku. „Ef einhver sem skilur hollensku vill taka það að sér að þýða bókina að þá væri það mjög kærkomið. Mér myndi finnast mjög gaman ef bókin væri þýdd á íslenskuna,“ segir Paul og bendir áhugasömum á að hafa samband. „Stuttu eftir að bókin mín kom út þá frétti ég af hollenskri hljómsveit sem kallaði sig The Giants of Húsavík. Mér fannst nafnið of gott til að vera satt og þar sem ég er kunnugur Íslandi ákvað ég að hafa samband við þá. Þá kemur í ljós að þeir tóku upp fyrstu plötuna sína í Sandgerði síðasta haust en höfðu aldrei komið til Húsavíkur fyrr en núna. Nafnið fengu þeir þegar þeir skoðuðu ferðamannabækling frá valaskoðunarfyrirtæki sem auglýsti hvalina sem The Giants of Húsavík. Þeir urðu alveg heillaðir af Íslandi, sérstaklega hvölum, og nafnið er grípandi og svolítið fyndið svo þeir ákváðu að nota það,“ segir Paul.
Þeir Maurits og Jason spila báðir í þekktum hollenskum rokkhljómsveitum en vildu breyta út af vananum og hefur tónlist The Giants of Húsavík verið líkt við Sigur Rós. „Við strákarnir vonum svo að það verði eitthvað meira úr verkefninu. Við erum með fullt af góðum hugmyndum. Þeir ætla að spila eitthvað meira hérna og stefna að því að taka upp næstu plötu á Húsavík, jafnvel í samvinnu við húsvíska tónlistarmenn. Svo ætla ég að skrá niður allt ævintýrið og gera ferðabók úr öllu saman og tónlistin fær veigamikinn sess,“ segir Paul sem er mikill tónlistarunnandi og spilar tónlist stórt hlutverk í nýjustu bók hans. Aðspurður hvort Hollendingar hafi eitthvað á móti Íslendingum, fer Paul að hlæja og segir deilurnar ekki stórmál. „Jú, við eigum það til að grínast með íslenska peninga en annars líkar okkur vel við Íslendinga. Svo er ég bara kominn í frí. Ég er hér næstu vikurnar að njóta lífsins og skella mér á jökla, klifra fjöll og synda í yndislegu sundlaugunum ykkar. Hér er frábært að vera.“ Hægt er að hlusta á tónlist The Giants of Húsavík á myspacesíðu.

Zie ook het Engelstalige bericht op de website van het Whale Museum.